Lamentations 3

1Ég er maðurinn, sem eymd hefi reynt undir sprota reiði hans. 2Mig hefir hann rekið og fært út í myrkur og niðdimmu. 3Já, gegn mér snýr hann æ að nýju hendi sinni allan daginn. 4Hann hefir tálgað af mér hold mitt og hörund, brotið sundur bein mín, 5hlaðið hringinn í kringum mig fári og mæðu, 6hneppt mig í myrkur eins og þá sem dánir eru fyrir löngu. 7Hann hefir girt fyrir mig, svo að ég kemst ekki út, gjört fjötra mína þunga. 8Þótt ég hrópi og kalli, hnekkir hann bæn minni. 9Hann girti fyrir vegu mína með höggnum steinum, gjörði stigu mína ófæra. 10Hann var mér eins og björn, sem situr um bráð, eins og ljón í launsátri. 11Hann hefir leitt mig afleiðis og tætt mig sundur, hann hefir látið mig eyddan, 12hann hefir bent boga sinn og reist mig að skotspæni fyrir örina, 13hefir sent í nýru mín sonu örvamælis síns. 14Ég varð öllum þjóðum að athlægi, þeim að háðkvæði liðlangan daginn. 15Hann mettaði mig á beiskum jurtum, drykkjaði mig á malurt 16og lét tennur mínar myljast sundur á malarsteinum, lét mig velta mér í ösku. 17Þú sviptir sálu mína friði, ég gleymdi því góða 18og sagði: ,,Horfinn er lífskraftur minn, von mín fjarri Drottni.`` 19Minnstu eymdar minnar og mæðu, malurtarinnar og eitursins. 20Sál mín hugsar stöðugt um þetta og er döpur í brjósti mér. 21Þetta vil ég hugfesta, þess vegna vil ég vona: 22Náð Drottins er ekki þrotin, miskunn hans ekki á enda, 23hún er ný á hverjum morgni, mikil er trúfesti þín! 24Drottinn er hlutdeild mín, segir sál mín, þess vegna vil ég vona á hann. 25Góður er Drottinn þeim er á hann vona, og þeirri sál er til hans leitar. 26Gott er að bíða hljóður eftir hjálp Drottins. 27Gott er fyrir manninn að bera ok í æsku. 28Hann sitji einmana og hljóður, af því að Hann hefir lagt það á hann. 29Hann beygi munninn ofan að jörðu, vera má að enn sé von, 30hann bjóði þeim kinnina sem slær hann, láti metta sig með smán. 31Því að ekki útskúfar Drottinn um alla eilífð, 32heldur miskunnar hann aftur, þegar hann hrellir, eftir sinni miklu náð. 33Því að ekki langar hann til að þjá né hrella mannanna börn. 34Að menn troða undir fótum alla bandingja landsins, 35að menn halla rétti manns fyrir augliti hins Hæsta, 36að menn beita mann ranglæti í máli hans, _ skyldi Drottinn ekki sjá það? 37Hver er sá er talaði, og það varð, án þess að Drottinn hafi boðið það? 38Fram gengur ekki af munni hins Hæsta bæði hamingja og óhamingja? 39Hví andvarpar maðurinn alla ævi? Hver andvarpi yfir eigin syndum! 40Rannsökum breytni vora og prófum og snúum oss til Drottins. 41Fórnum hjarta voru og höndum til Guðs í himninum. 42Vér höfum syndgað og verið óhlýðnir, þú hefir ekki fyrirgefið, 43þú hefir hulið þig í reiði og ofsótt oss, myrt vægðarlaust, 44þú hefir hulið þig í skýi, svo að engin bæn kemst í gegn. 45Þú gjörðir oss að afhraki og viðbjóð mitt á meðal þjóðanna. 46Yfir oss glenntu upp ginið allir óvinir vorir. 47Geigur og gildra urðu hlutskipti vort, eyðing og tortíming. 48Táralækir streyma af augum mér út af tortíming þjóðar minnar. 49Hvíldarlaust fljóta augu mín í tárum, án þess að hlé verði á, 50uns niður lítur og á horfir Drottinn af himnum. 51Auga mitt veldur sál minni kvöl, vegna allra dætra borgar minnar. 52Með ákefð eltu mig, eins og fugl, þeir er voru óvinir mínir án saka. 53Þeir gjörðu því nær út af við mig í gryfju og köstuðu steinum á mig. 54Vatn flóði yfir höfuð mitt, ég hugsaði: ,,Ég er frá.`` 55Ég hrópaði á nafn þitt, Drottinn, úr hyldýpi gryfjunnar. 56Þú heyrðir hróp mitt: ,,Byrg ekki eyra þitt, kom mér til fróunar, kom mér til hjálpar.`` 57Þú varst nálægur, þá er ég hrópaði til þín, sagðir: ,,Óttastu ekki!`` 58Þú varðir, Drottinn, mál mitt, leystir líf mitt. 59Þú hefir, Drottinn, séð undirokun mína, rétt þú hluta minn! 60Þú hefir séð alla hefnigirni þeirra, allt ráðabrugg þeirra gegn mér, 61þú hefir heyrt smánanir þeirra, Drottinn, allt ráðabrugg þeirra í gegn mér, 62skraf mótstöðumanna minna og hinar stöðugu ráðagjörðir þeirra gegn mér. 63Lít þú á, hvort sem þeir sitja eða standa, þá er ég háðkvæði þeirra. 64Þú munt endurgjalda þeim, Drottinn, eins og þeir hafa til unnið. 65Þú munt leggja hulu yfir hjarta þeirra, bölvan þín komi yfir þá. 66Þú munt ofsækja þá í reiði og afmá þá undan himni Drottins.
Copyright information for Icelandic